Leitast er eftir því að ráða frístundaleiðbeinendur í félagsmiðstöðvar á Reyðarfirði, Eskifirði og í Neskaupstað.
Auglýst er eftir starfsfólki sem tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd félagsmiðstöðvastarf í Fjarðabyggð í nánu samstarfi við deildarstjóra frístunda barna og unglinga.
Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir vöktum í félagsmiðstöðvum.
- Hefur umsjón með ákveðnum hópum, verkefnum og viðburðum tengdum menningar-, félags-, og tómstundastarfi í félagsmiðstöðvum í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
- Skipuleggur og hefur umsjón með tómstundastarfi fyrir börn og unglinga í samstarfi við deildarstjóra.
- Sækir viðburði með börnum og unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
- Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í tómstundastarfi.
- Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
- Umsjón með þrifum á húsnæði eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám á sviði tómstunda er kostur.
- Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri.
Starfslýsing: frístundarleiðbeinandi
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí og eru umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Inga Gunnarsdóttir deildarstjóri tómstunda og forvarnarmála á netfanginu [email protected]
Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar