FRÍSTUNDALEIÐBEINANDI VIÐ FRÍSTUND ESKIFJARÐARSKÓLA
Laus er til umsóknar 50% staða frístundaleiðbeinenda við Frístund Eskifjarðarskóla, Dvölin. Á frístundaheimilinu er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Frístundaheimilið býður einnig upp á lengri viðveru fatlaðra nemenda. Lögð er áhersla á starfsþróun og vellíðan starfsfólks. Menntunar- og hæfniskröfur:
- Uppeldismenntun er æskileg
- Reynsla og hæfni til að vinna með börnum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Ábyrgð í starfi og stundvísi
Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í að búa sem best að nemendum og ástunda góð samskipti.
Staðan er laus frá 07.02.2022. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags Umsóknarfrestur er til 11. feb. 2022 og skulu umsóknir berast rafrænt í gegnum ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Traustadóttir skólastjóri, í síma 470 9150, netfang: [email protected]