FRÍSTUNDALEIÐBEINANDI VIÐ FRÍSTUND ESKIFJARÐARSKÓLA
Laus er staða frístundaleiðbeinenda við Frístund Eskifjarðarskóla
Laus er til umsóknar 50 % staða frístundaleiðbeinenda við Frístund Eskifjarðarskóla, Dvölinni. Á frístundaheimilinu er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Frístundaheimilið býður einnig upp á lengri viðveru fatlaðra nemenda. Lögð er áhersla á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Uppeldismenntun er æskileg
- Reynsla og hæfni til að vinna með börnum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Ábyrgð í starfi og stundvísi
Starfslýsing skólaliði I aðstoð í lengdri viðveru.pdf
Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í að búa sem best að nemendum og ástunda góð samskipti.
Umsóknir og umsóknarfrestur
Staðan er laus frá 2. desember. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags
Umsóknarfrestur er til 31. desember og skulu umsóknir berast rafrænt eða í merktu umslagi í Eskifjarðarskóla, Lambeyrarbraut 16, 735 Eskifirði.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Traustadóttir skólastjóri, í síma 470 9150, netfang: [email protected]
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér