Frístundaleiðbeinandi við félagsmiðstöðina Hellinn á Fáskrúðsfirði

Laus er til umsóknar staða frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Hellinn á Fáskrúðsfirði. Um er að ræða tímavinnustarf sem fer fram aðallega seinnipart dags og á kvöldin.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynslu og áhuga á starfi með börnum og ungmennum
  • Færni í samskiptum

Umsækjendur skulu vera með hreint sakavottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Starfslýsing frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöð

Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. Sími: 893-9098. Netfang: [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 3. janúar 2020. Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér

Secret Link