Framtíðarstarf á Reyðarfirði í vöruhúsi Eimskips

Eimskip leitar að þjónustuliprum og drífandi starfsmanni í framtíðartarf við vöruhúsaþjónustu hjá Eimskip á Reyðarfirði.

Um fullt starf er að ræða og er reglubundinn vinnutími frá 08:00-16:00 alla virka daga. Æskilegt er að viðkomandi sé reiðubúinn að vinna yfirvinnu þegar þörf er á.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  •  Móttaka og dreifing sendinga
  •  Skráning, eftirlit og talning sendinga
  •  Almenn afgreiðslustörf
  •  Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  •  Góð þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  •  Ökuréttindi (B) og meirapróf (C) skilyrði
  •  Lyftarararéttindi (J) kostur
  •  Framtakssemi, stundvísi og almenn hreysti
  •  Almenn tölvukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ármann Egill Hjörleifsson, afgreiðslustjóri Eimskips á Reyðarfirði, [email protected]. Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is.

Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2020.

Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Secret Link