
Framleiðslustörf
Alvcoa Fjarðaál leitar að jákvæðu og duglegu fólki í fjölbreytt framleiðslustörf í kerskála, skautsmiðju og styepuskála. við erum stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. álverið á Reyðarfirði er meðal þeirra fullkomnustu í heiminum og saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Um 360 framleiðslustarfsmenn eru kjarninn í verðmætasköpun Fjarðaáls. Framleiðslustörfin eru að jafnaði unnin á þrískiptum átta tíma vöktum.
Hvers vegna vinna með okkur?
- Við höfum 150 klukkutíma vinnuskyldu á mánuði
- Við erum með vaktakerfi sem gefur góðar tekjur og góðan frítíma
- Við fáum ókeypis akstur til og frá vinnu og frítt fæði í frábæru mötuneyti
- Við leggjum mikla áherslu á að tryggja öryggi og heilsu allra á vinnustaðnum
- Við höfum okkar eigin heilsugæslu og aðgang að Velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Við trúum því að samhent teymi ólíkra einstaklinga skili bestum árangri
- Við gerðum með okkur sameiginlegan sáttmála um góða vinnustaðarmenningu
- Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið í jafnréttismálum í samstarfi við Jafnréttisvísi
- Við fáum góð tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar
- Við erum með virkt umbótastarf þar sem áhersla er lögð á þátttöku starfsmanna
- Við búum í nálægð við náttúruna í fjölskylduvænu samfélagi á Austurlandi
Frekari upplýsingar um framleiðslustörfin veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 470 7700.
Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, tala íslensku, vera með gild ökuréttindi og hreint sakavottorð. Umsóknir eru trúnaðarmál og þeir er öllum svarað.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Fríðindi í starfi
- Fatnaður
- Íþrótta og meðferðarstyrkir
- Mötuneyti
- Öflug velferðaþjónusta
- Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
Hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðninarvef Alcoa: https://alcoa.wd5.myworkdayjobs.com/en-US/Careers/job/Framleislustrf_Req-16780