Framkvæmdastjóri – Vök Baths
Vök baths leitar að drífandi leiðtoga fyrir spennandi og ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki á Egilsstöðum.
Vök baths er einstakur baðstaður við Urriðavatn sem býður upp á upplifun í heitum, fljótandi laugum, gufubað, veitingastað og bar. Staðurinn opnaði í júlí 2019 og hefur því verið ár í rekstri og fengið frábærar viðtökur.
Framkvæmdastjóri hefur yfirsýn yfir daglega starfsemi og rekstur og vinnur náið með öðru starfsfólki í stoð- og þjónustuhlutverkum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum rekstri fyrirtækisins, þ.m.t. skipulag, mannauðsmál, fjármál og mælikvarðar
- Stefnumótun og áætlanagerð
- Þróun staðarins og framtíðarsýn
- Markaðs- og sölumál
- Samskipti við samfélag og alla hagaðila
- Yfirsýn yfir tæknimál og framkvæmdir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starf
- Reynsla í forystuhlutverki, leiðtogahæfni og drifkraftur
- Reynsla af stjórnun og rekstri
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Góð enskukunnátta
Sótt er um starfið hér.