Framkvæmdastjóri Austurbrúar
Ertu reyndur stjórnandi með góða leiðtogahæfileika og innsýn í stjórnsýslu?
Ef þú vilt vinna á þverfaglegum og spennandi vinnustað, þar sem hvatinn er efling Austurlands, þá er þetta starfið fyrir þig. Sterk krafa er um að viðkomandi hafi framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni og geti leitt ólíka málaflokka og verkefnasvið á árangursríkan, fagegan og skilvirkan hátt.
Leitað er að drífandi og reyndum leiðtoga í stjórnunarstarf sem byggir m.a. á miklum samskiptum við stjórnvöld á öllum stigum stjórnsýslunnar, stofnanir og fyrirtæki í nærumhverfi og á landsvísu, hagsmunasamtök og aðra þá sem tengjast starfsemi stofnunarinnar.
Framkvæmdastjóri veitir faglega og stjórnunarlega forystu og starfar í umboði og í samræmi við stefnu stjórna hverju sinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun starfsemi Austurbrúar, SSA og annarra tengdra félaga
- Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana stjórna
- Ábyrgð á framkvæmd fjárhagsáætlana, starfsáætlana og stefnumörkunar
- Ábyrgð á framkvæmd samningsbundinna verkefna Austurbrúar og SSA
- Hagsmunagæsla fyrir landshlutann og eftirfylgni Svæðisskipulags Austurlands
- Samskipti og samstarf við hagaðila, s.s. sveitarfélög, opinberar stofnanir, atvinnulíf og aðra hagaðila
- Undirbúningur stjórnarfunda og úrvinnsla eftir þá
- Ráðgjöf við stjórn
- Önnur verkefni í samráði við stjórn
Helstu menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög góð þekking á Austurlandi, samfélagi og atvinnulífi
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
- Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og mannaforráðum
- Mjög góð samskipta- og leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs
- Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu og áætlanagerð í umfangsmiklum verkefnum
- Þekking og reynsla af byggðamálum og málaflokkum stofnunarinnar er æskileg
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Framsýni, lausnamiðuð hugsun, útsjónarsemi og jákvætt viðmót
- Heiðarleiki og gott orðspor
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Um vinnustaðinn
Austurbrú er sjálfseignarstofnun sem starfar í stoðþjónustu á Austurlandi. Stofnunin er verkefnastofa sem vinnur að framgangi víðtækra og þverfaglegra verkefna í þágu Austurlands. Málaflokkar stofnunarinnar eru byggðaþróun og atvinnumál, fræðslumál, rannsóknir og greiningar, rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og verkefna þess auk reksturs innri mála stofnunarinnar. Starfsstöðvarnar bjóða góða aðstöðu og aðbúnað. Austurbrú hefur hlotið jafnlaunavottun og er EQM vottuð stonun á sviði fræðslumála og var framúrskarandi fyrirtæki 2022 á lista Creditinfo.
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Alla umsóknir eru trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Framkvæmdastjóri getur haft aðsetur á hverri af starfsstöðvum Austurbrúar en búseta á Austurlandi er skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.