Framkvæmdastjóri Austurbrúar

rtu reyndur stjórnandi með góða leiðtogahæfileika og innsýn í stjórnsýslu?

 

Ef þú vilt vinna á þverfaglegum og spennandi vinnustað, þar sem hvatinn er efling Austurlands, þá er þetta starfið fyrir þig. Sterk krafa er um að viðkomandi hafi framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni og geti leitt ólíka málaflokka og verkefnasvið á árangursríkan, faglegan og skilvirkan hátt.

 

Leitað er að drífandi og reyndum leiðtoga í stjórnunarstarf sem byggir m.a. á miklum samskiptum við stjórnvöld á öllum stigum stjórnsýslunnar, stofnanir og fyrirtæki í nærumhverfi og á landsvísu, hagsmunasamtök og aðra þá sem tengjast starfsemi stofnunarinnar. Framkvæmdastjóri veitir faglega og stjórnunarlega forystu og starfar í umboði og í samræmi við stefnu stjórna hverju sinni.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun starfsemi Austurbrúar, SSA og annarra tengdra félaga

· Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana stjórna

· Ábyrgð á framkvæmd fjárhagsáætlana, starfsáætlana og stefnumörkunar

· Ábyrgð á framkvæmd samningsbundinna verkefna Austurbrúar og SSA

· Hagsmunagæsla fyrir landshlutann og eftirfylgni Svæðisskipulags Austurlands

· Samskipti og samstarf við hagaðila s.s. sveitarfélög, opinberar stofnanir, atvinnulíf og aðra hagaðila

· Undirbúningur stjórnarfunda og úrvinnsla eftir þá

· Ráðgjöf við stjórn

· Önnur verkefni í samráði við stjórn

 

Helstu menntunar- og hæfniskröfur:

· Mjög góð þekking á Austurlandi, samfélagi og atvinnulífi

· Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur

· Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og mannaforráðum

· Mjög góð samskipta- og leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs

· Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu og áætlanagerð í umfangsmiklum verkefnum

· Þekking og reynsla af byggðamálum og málaflokkum stofnunarinnar er æskileg

· Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg

· Framsýni, lausnamiðuð hugsun, útsjónarsemi og jákvætt viðmót

· Heiðarleiki og gott orðspor

· Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Secret Link