Framkvæmdastjóri ABS / ABS Manager

Alcoa Fjarðaál leitar að metnaðarfullum framkvæmdastjóra ABS sem gegnir lykilhlutverki í að móta og innleiða umbótastefnu, auka framleiðni og samþætta ABS-kerfið í öllu rekstrarumhverfi fyrirtækisins. Framkvæmdastjórinn leiðir þverfagleg teymi, stuðlar að framleiðnimenningu á vinnustaðnum og tryggir stöðugar umbætur með stefnumótun og mælikvörðum á árangur.

Hlutverkið felur í sér náið samstarf við yfirstjórn, þátttöku í innri úttektum og að veita teymum þau verkfæri og staðla sem þarf til að ná árangri.

Reka ferli í samræmi við stefnur, gildi og markmið Fjarðaáls.

  • Stýra teymi og vinna stöðugt að því að ná betri árangri og meiri skilvirkni
  • Leiða og hvetja teymi til að ná markmiðum og fylgja eftir frávikum á mælikvörðum
  • Tryggja góða samvinnu við önnur teymi og styðja við rekstur annara ferla
  • Þátttaka í stefnumótun og rýni stjórnenda á stjórnkerfi Fjarðaáls
  • Vera þátttakandi í vinnu framkvæmdastjórnar, leggja til þekkingu og vinna að framkvæmd áætlana
  • Bregðast við atvikum og fylgja eftir fyrirbyggjandi aðgerðum
  • Skilja þarfir og væntingar viðskiptavina
  • Gerð fjárhagsáætlana fyrir viðkomandi teymi.
Helstu verkefni og ábyrgð

Virða og framfylgja gildum og stefnum Alcoa
• Unnið sé eftir stjórnkerfi Fjarðaáls
• Framfylgja lögum, reglum og stöðlum
• Að unnið sé skv. samþykktum ferlum og verklagsreglum
• Framfylgja framleiðslu- og gæðastöðlum
• Veita upplýsingar og fara að kröfum stoðteyma sem nauðsynlegar eru þeirra ferlum innan tímamarka
• Miðla upplýsingum til síns teymis
• Fylgja eftir að þjálfunarmarkmiðum sé náð
• Tryggir næg aðföng til að ná ferlismarkmiðum
• Viðhalda og tryggja tengsl milli teyma
• ABS aðferðafræði sé notuð til að viðhalda og bæta ferli

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og/eða réttindi sem krafist er
Lágmarksmenntun: –BA eða BS gráða

Reynsla sem krafist er
A.m.k. 7 til 10 ára starfsreynsla eftir háskólapróf.

Hæfni sem krafist er
• Byggja upp öfluga liðsheild og vinnustaðamenningu
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Skipulag og framsýni
• Hæfileiki til að miðla upplýsingum í ræðu og riti
• Góð enskukunnátta
• Skilning á rekstri
• Rekstrarhæfni

Fríðindi í starfi
  • Gott mötuneyti
  • Rútuferðir til og frá vinnu
  • Velferðaþjónusta
Secret Link