Framkvæmdastjóri
Vök baths leitar að drífandi og metnaðarfullum leiðtoga fyrir spennandi og ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki á Egilsstöðum.
Framkvæmdastjóri hefur yfirsýn yfir daglega starfsemi og rekstur og vinnur náið með öðru starfsfólki í stoð- og þjónustuhlutverkum.
Gerð er krafa um að framkvæmdastjórinn búi á Austurlandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum rekstri fyrirtækisins, þ.m.t. skipulag, mannauðsmál, fjármál og mælikvarðar
- Stefnumótun og áætlanagerð
- Þróun staðarins og framtíðarsýn
- Markaðs- og sölumál
- Samskipti við samfélag og alla hagaðila
- Önnur verkefni í samráði við stjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri og forystuhlutverki
- Góð yfirsýn, árverkni og færni til ákvörðunartöku
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Leiðtogahæfni og drifkraftur
- Góð enskukunnátta
Vök baths er einstakur baðstaður við Urriðavatn hjá Egilsstöðum sem býður upp á upplifun í heitum, fljótandi laugum, kalt bað í Urriðavatninu, gufubað, kaldan úða, veitingastað og bar.
Staðurinn opnaði í júlí 2019 og hefur verið í mikilli sókn á hverju ári frá opnun.
Hjá fyrirætkinu starfa um 16 manns á ársgrundvelli, en á álagstímum getur fjöldi starfsmanna farið yfir 30.
Vakirnar eru aðal kennimerki Vök baths, en það eru tvær laugar sem fljóta á vatninu, með aðgengi við Urriðavatnið sem getur verið 0-15 gráðu heitt. Gestir geta því reynt á eigin skinny að sitja í heitum vökum Urriðavatns og mynda þannig einstök tengsl við náttúruna í kring. Jarðhitavatnið sem notað er í böðin er einstakt á Íslandi. Um er að rða eina jarðhitavatnið sem vottað er hæft til drykkjar á landinu.
Í allri starfsseminni er lögð áhersla á endurvinnslu, hráefni úr heimabyggð, minnkun úrgangs og stöðuga umbótarvinnu.
Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2023 og sótt er um starfið á www.mognum.is.
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyirr hæfni umsækjenda.
Nánari upplýsingar veita:
Sigriður Ólafsdóttir – [email protected]
Telma Eiðsdóttir – [email protected]