Framhaldsskólakennari í háriðn

Framhaldsskólakennari í háriðn óskast við Verkmenntaskóla Austurlands

Við Verkmenntaskóla Austurlands er laus til umsóknar 25% staða framhaldsskólakennara í háriðn á vorönn 2019.

Umsækjendur þurfa að hafa löggild réttindi í viðkomandi kennslugrein og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi sbr. lög nr. 87/2008.

Leitað er eftir skipulögðum einstaklingum með góða samskiptahæfni, brennandi áhuga á skólastarfi og löngun til að vinna með ungu fólki. Mikilvægt er að geta sýnt frumkvæði í starfi og hafa góða þekkingu á ólíkum kennsluaðferðum. Kennslureynsla er æskileg. Góð tölvukunnátta er mikilvæg. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi VA.

Umsóknir ásamt greinargerð um menntun og fyrri störf berist á tölvupóstfangið [email protected] fyrir 3. desember 2019. Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur í umsókninni. Afriti af prófskírteinum skal skila með umsókn ásamt sakavottorði.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir skólameistari, [email protected] .

Á heimasíðu skólans, www.va.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Secret Link