Fræðslufulltrúi Vatnajökulsþjóðgarðs

Laust er til umsóknar starf fræðslufulltrúa Vatnajökulsþjóðgarðs. Um er að ræða
nýtt starf til að fylgja eftir fræðsluáætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og
uppbyggingarstarf við miðlun upplýsinga. Starfið heyrir beint undir
framkvæmdastjóra sem er staðsettur á aðalskrifstofu þjóðgarðsins í Garðabæ en
því skal sinna frá einhverri af meginstarfsstöðum þjóðgarðsins á landsbyggðinni; í
Ásbyrgi, Mývatnssveit, á Skriðuklaustri/Fellabæ, Höfn í Hornafirði, Skaftafelli eða
Kirkjubæjarklaustri.

Helstu verkefni og ábyrgð
– Þróa og framfylgja fræðsluáætlun þjóðgarðsins í samvinnu við þjóðgarðsverði/starfsfólk
– Umsjón með fræðslu fyrir gesti þjóðgarðsins og rekstraraðila í þjóðgarðinum
– Umsjón með skiltagerð og merkingum
– Umsjón með og samræmingu á útgáfu á vegum þjóðgarðsins
– Umsjón með vefssvæði og samfélagsmiðlum þjóðgarðsins
– Í starfinu felast m.a. ferðalög milli svæða þjóðgarðsins
– Önnur tilfallandi verkefni

Hæfnikröfur
– Háskólamenntun sem nýtist í starfi
– Leiðtogahæfni og frumkvæði til að hvetja aðra til árangurs
– Þekking og reynsla á starfsemi þjóðgarða, náttúruvernd og ferðamálum
– Reynsla af landvörslu, umhverfis- og náttúrutúlkun eða grenndarkennslu er kostur
– Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
– Nákvæmni, faglegur metnaður og skipulagsfærni
– Reynsla og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
– Tölvufærni og geta til að vinna eftir verkferlum
– Þekking á og reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi
stéttarfélag hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019. Sótt er um starfið á Starfatorgi og skal
umsóknum fylgja ítarlegt yfirlit um menntun og starfsferil. Hvetjum jafnt konur sem karla
að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019.
Umsóknareyðublöð vegna starfsins eru á Starfatorgi.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Smáradóttir – [email protected] –s. 575 8403.

Secret Link