Forvarnafulltrúi – starf án staðsetningar

Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir stöðu forvarnafulltrúa – starf án staðsetningar!

Leitað er að drífandi leiðtoga sem brennur fyrir málefninu og hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, framúrskarandi hæfni í samskiptum, getu til að miðla efni í ræðu og riti, nákvæmni í vinnubrögðum og skipulagshæfileika. Þá krefst starfið þverfaglegs samstarfs og teymisvinnu.

Um er að ræða tímabundið starf til tveggja ára með möguleika á framlengingu.

Sérstaklega er vakin athygli á því að þeir sem ráðnir verða geta haft starfsstöð utan höfuðborgarsvæðisins á einhverjum af þeim starfstöðvum sem Byggðastofnun hefur kynnt fyrir störf án staðsetningar, og má finna á vefsíðu stofnunarinnar eða sambærilegri aðstöðu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fylgja því eftir að forvarnir verði markviss þáttur í skólastefnu sveitarfélaga og forvarnastefnu hvers skóla og samþættar inn kennslu og skólastarf.

  • Veita skólaskrifstofum, skólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum stuðning og fræðslu og styðja við að til verði virk forvarnateymi í hverjum grunnskóla.
  • Styðja við forvarnastarf í framhaldsskólum og í félögum og stofnunum, sem starfa með fötluðum börnum og ungmennum.
  • Taka saman upplýsingar um framgang aðgerðaráætlunarinnar og framhald hennar í samstarfi við skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu og önnur verkefni í tengslum við framgang áætlunarinnar eftir því sem við á.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi. Meistarapróf er kostur.
  • Geta til að stýra verkefnum, setja upp skipulag og áætlanir og fylgja þeim eftir.
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfileikar, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
  • Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í framsetningu upplýsinga er skilyrði.
  • Mjög góð færni í ensku og  kunnátta í einu Norðurlandamáli er kostur.

Nánari upplýsingar veitir Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs [email protected] eða í síma 515-4900.

Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi og samheldinn starfsmannahóp. Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á vefsíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna nánari starfslýsingu sem og mannauðsstefnu sambandsins.

Umsóknir merktar Umsókn um starf forvarnarfulltrúa skulu berast eigi síðar en mánudaginn 15. mars nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík eða með tölvupósti á [email protected] Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.