Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs

Laust er til umsóknar starf forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs.

Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs var stofnuð árið 2005. Hlutverk hennar er að bjóða upp á og efla lista- og menningarstarf á Fljótsdalshéraði. Menningarmiðstöðin vinnur einnig að framgangi lista- og menningarstarfsemi á Austurlandi.

Leitað er að einstaklingi í framtíðarstarf, með mikinn áhuga á menningarmálum, hefur til að bera drifkraft og frumkvæði og finnst skemmtilegt að vinna með öðru fólki. Æskilegt er að forstöðumaður hefji störf 1. október 2019.

Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri menningarmiðstöðvarinnar. Helstu verkefni eru:
• Skipulagning dagskrár og viðburða menningarmiðstöðvarinnar
• Samstarf við aðrar menningarmiðstöðvar, félög, stofnanir og einstaklinga sem vinna að málefnum lista og menningar
• Gerð styrkumsókna, alþjóðleg verkefni og tengslamyndun
• Starfa með skólum á Austurlandi og veita ráðgjöf, fræðslu og upplýsingar m.a. varðandi sviðslistir
• Sinna samstarfi við menningarstofnanir á landsvísu
• Vinna með fagráði menningarmiðstöðvarinnar að árlegri listrænni stefnu og þróun starfseminnar
• Hafa umsjón með Sláturhúsinu – menningarsetri á Egilsstöðum

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði menningar eða lista æskileg
• Þekking og reynsla úr umhverfi sviðslista kostur
• Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar, reynsla á sviði menningarstjórnunar góður kostur
• Samskipta- og tjáskiptahæfileikar, metnaður og frumkvæði
• Góð tungumálakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi, sími 860 2905 eða [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2019.

Umsókn merkt Forstöðumaður menningarmiðstöðvar berist á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða á netfangið [email protected]

Secret Link