Forstöðumaður Frístundar

Auglýst er starf forstöðumanns Frístundar, sem er lengd viðvera fyrir yngstu nemendur skólans. Starfið er 50% starf. Í starfinu felst yfirumsjón með skipulagi og vinna með nemendum. Umsjón með skráningum og samskiptum við foreldra.
Hæfniskröfur eru uppeldismenntun, starfshæfni á yngri barna sviði, færni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni.

Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er til 8. apríl n.k. Nánari upplýsingar veitir Ruth Magnúsdóttir skólastjóri í síma 4700 607 eða netfang [email protected]

Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda skólastjóra [email protected]

Í Egilsstaðaskóla eru 370 nemendur og tæplega 80 starfsmenn. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn. Gildi skólans eru gleði, virðing og metnaður. Áhersluþættir í faglegu starfi eru teymiskennsla, virkir nemendur og list og verkgreinar. Skólinn er til húsa í nýlegu og nýlega uppgerðu húsnæði og er aðstaða öll til fyrirmyndar.