Forstöðufólk sumarfrístundar í Múlaþingi

Múlaþing leitar að sjálfstæðum, hressum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingum yfir 20 ára aldri til að hafa yfirumsjón með sumarfrístund í Múlaþingi sumarið 2023.

Menntun sem nýtist í starfi og reynsla af störfum með börnum og unglingum er mikill kostur og góð hæfni í mannlegum samskiptum nauðsynleg.

Um er að ræða sumarstörf á Egilsstöðum, Djúpavogi og Seyðisfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber daglega ábyrgð á og sér um skipulagningu og umsjón yfir sumarfrístund
  • Hefur samskipti við foreldra og forráðafólk, sér um alla skráningu og utanumhald
  • Hefur samskipti við viðeigandi stofnanir og deildir sveitarfélagsins, auk yfirvalda, ef þörf krefur
  • Forgangsraðar, samræmir og setur starfsfólki sumarfrístundar fyrir verkefni og tekur þátt í störfum þeirra
  • Leiðbeinir starfsfólki um verklag og aðferðir og hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið. Gæti þess að ávallt liggi skýrt fyrir hvaða verkefnum starfsfólk á að sinna
  • Hefur frumkvæði að lausn verkefna á því sviði sem undir hann heyra og hann starfar að
  • Staðfestir vinnutíma starfsfólks og skilar til yfirmanna
  • Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi
  • Aðstoða börn í martar- og kaffitímum
  • Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Áhugi á að vinna með börnum og fjölskyldum þeirra
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Metnaður og dugnaður
  • Hreint sakavottorð
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni

Allir umsækjendur þurfa ða gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10.gr. laga nr. 70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.

Öllum umsóknum skal fylgja rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Bylgja Borgþórsdóttir í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar 2023 og hægt er að sækja um í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Forstöðufólk sumarfrístundar í Múlaþingi | Fjölskyldusvið (alfred.is) eða í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.

Secret Link