Forstöðufólk sumarfrístundar í Múlaþingi
Múlaþing leitar að sjálfstæðum, hressum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingum yfir 20 ára aldri til að hafa yfirumsjón með sumarfrístund í Múlaþingi sumarið 2023.
Menntun sem nýtist í starfi og reynsla af störfum með börnum og unglingum er mikill kostur og góð hæfni í mannlegum samskiptum nauðsynleg.
Umm er að ræða 100% störf frá maí til ágústloka á Egilsstöðum, Djúpavogi og Seyðisfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber daglega ábyrgð á og sér um skipulagningu og umsjón yfir sumarfrístund
- Hefur samskipti við foreldra og forráðafólk, sér um alla skráningu og utanumhald
- Hefur samskipti við viðeigandi stofnanir og deildir sveitarfélagsins, auk yfirvalda, ef þörf krefur
- Forgangsraðar, samræmir og setur starfsfólki sumarfrístundar fyrir verkefni og tekur þátt í störfum þeirra
- Leiðbeinir starfsfólki um verklag og aðferðir og hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið. Gætir þess að ávallt liggi skýrt fyrir hvaða verkefnum starfsfólk á að sinna
- Hefur frumkvæði að lausn verkefna á því sviði sem undir hann heyra og hann starfar að
- Staðfestir vinnutíma starfsfólks og skilar til yfirmanna
- Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi
- Aðstoða börn í matar- og kaffitímum
- Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Áhugi á að vinna með börnum og fjölskyldum þeirra
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Metnaður og dugnaður
- Hreint sakavottorð
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni
Allir umsækjendur þurfa ða gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10.gr. laga nr. 70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr sömu laga.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.
Öllum umsóknum skal fylgja rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Bylgja Borgþórsdóttir í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]
Umsækjendum er bet á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2023 og hægt er að sækja um starfið á ráðningarvef