Forstöðuaðili skíðasvæðisins í Stafdal
Laust er til umsóknar starf forstöðuaðila síðasvæðisins í Stafdal.
Í starfinu felst dagleg umsjón með rekstri skíðasvæðisins, starfsmannahald, samskipti við notendur og kynningarstarf.
Leitað er að aðila með reynslu af útivist og skíðamennsku með brennandi áhuga og drifkraft til þess að vinna að þróun og utanumhaldi svæðisins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Opnun svæðisins og daglegan rekstur þess út veturinn sem og frágang á svæðinu
- Lyftuvörslu og önnur störf sem þarf að sinna
- Umsjón með starfsmannahaldi, skipulagi og verkaskiptingu milli starfsfólks
- Að öryggiskröfum skíðasvæða sé fullnægt
- Kynningu málefna skíðasvæðisins á heimasíðu sveitarfélagsins og á samfélagsmiðlum
- Samstarf vegna kynningar- og ferðamála
- Rekstur skíðaleigu og fleira sem henni fylgir
- Yfirumsjón með viðhaldi tækja og búnaðar
- Starf við þjónustumiðstöð á sumrin
Menntunar- og hæfniskröfur
- Færni í mannlegum samskiptum, góð samstarfshæfni og jákvætt viðmót
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og drifkraftur
- Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli og góð þekking á tölvum og netmiðlum
- Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum
- Menntun sem nýtist í starfi
- Geta og réttindi til troðslu á skíðasvæðinu kostur
- Kunnátta í skyndihjálp er kostur
- Reynsla af stjórnun er kostur
- Reynsla af vinnu með vinnuvélar og reynsla af viðgerðum og viðhaldi tækjabúnaðar kostur
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðokomandi stéttarfélag. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bylgja Borgþórsdóttir, í síma 470 0719 og á netfanginu [email protected]
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Forstöðuaðili skíðasvæðisins í Stafdal | Múlaþing | Fullt starf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)