Flugvallarstarfsmaður á Egilstaðaflugvelli
Isavia innanlandsflugvellir leita eftir einstaklingi til sumarafleysinga við flugvallarþjónustu og á vélaverkstæði Egilsstaðaflugvallar. Helstu verkefni eru björgunar- og slökkviþjónusta, viðhald flugvallar og umhverfis hans sem og viðhald á tækjum. Umsækjandi þarf að standast læknisskoðun og þolpróf.
Hæfniskröfur
• Bílpróf er skilyrði
• Meirapróf er kostur
• Reynsla af slökkvistörfum og vinnuvélapróf er kostur
• Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Harðarson umdæmisstjóri, [email protected]
Sótt er um starfið á isavia.is undir Störf í boði. Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar.
Vegna kröfureglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð.