
Flugþjónustufólk – Egilsstaðaflugvöllur
Icelandair leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytilegt starf við þjónustu og afgreiðslu flugfarþega á Egilsstöðum.
Mikil áhersla er lögð á þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum til að tryggja jákvæða upplifun farþega.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Áhugi og reynsla af þjónustustörfum er mikilvæg
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Gilt bílpróf og vinnuvélaréttindi æskilegt
- 18 ára lágmarksaldur
Starfssvið:
- Störf á flughlaði við komur og brottfarir flugvéla svo sem lestun og losun
- Annast almenna starfsemi í flugstöð
- Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini m.a. í gegnum síma
- Innritun farþega og farangurs og eftir tilvikum afgreiðsla á vörusendingum
- Bókanir og fullnaðarfrágangur á fyrirframgreiddri þjónustu
- Skoðun skilríkja og afgreiðsla farþega við brottfarahlið. Staðfesta heildarfjölda farþega um borð
- Önnur þau störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni
Þeir sem valdir verða úr hópi umsækjenda þurfa að sækja undirbúningsnámskeið.
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Örvar Einarsson, stöðvarstjóri. Netfang: halldore@icelandair,is
Umsóknarfrestur er til og með 24. september 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Icelandair: https://jobs.50skills.com/icelandair/is/15344