
Flugþjónustufólk – Egilsstaðaflugvöllur
Icelandair leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytilegt starf við þjónustu og afgreiðslu flugfarþega á Egilsstöðum
Mikil áhersla er lögð á þjónustulund og hæfni i mannlegum samskiptum til að tryggja jákvæða upplifun farþega.
Hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða ígildi þess æskilegt
- Áhugi og reynsla af þjónustustörfum er mikilvæg
- Mjög góð íslensku og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Gilt bílpróf og vinnuvélaréttindi æskilegt
- 18 ára lágmarksaldur
Starfssvið:
- Störf á flughlaði við komur og brottfarir flugvéla svo sem lestun og losun
- Annast almenna starfsemi í flugstöð
- Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini m.a. í gegnum síma
- Innritun farþega og farangurs og eftir tilvikum afgreiðsla á vörusendingum
- Bókanir og fullnaðarfrágangur á fyrirframgreiddri þjónustu
- Skoðun skilríkja og afgreiðsla farþega við brottfarahlið. Staðfesta heildarfjölda farþega um borð
- Önnur þau störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni
Þeir sem vladir verða úr hópi umsækjenda þurfa að sækja undirbúningsnámskeið.
Nánari upplýsingar veitir: Halldór Örvar Einarsson, stöðvarstjóri netfang: halldore@icelandair.is