Flugradióstarfsmaður á Egilsstaðaflugvelli

Isavia óskar eftir að ráða flugradíómann til sumarafleysinga á Egilsstaðaflugvöll. Viðkomandi þarf að ljúka grunnnámi flugradíómanna. Þjálfunin tekur u.þ.b. þrjá mánuði. Helstu verkefni eru að veita flugmönnum upplýsingar úr flugturni, fylgjast með fjarskiptarásum (radíó og síma) á auglýstum þjónustutíma og gerð og dreifing veðurathugana.

Hæfniskröfur

• Stúdentspróf eða sambærileg menntun

• Góð íslensku- og enskukunnátta

• Góð almenn tölvukunnátta  

• Lipurð í mannlegum samskiptum

• Gerð er krafa um gott heilsufar

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Harðarson umdæmisstjóri, [email protected]

Sótt er um starfið á isavia.is undir Störf í boði. Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar.

Vegna kröfureglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð.

SÆKJA UM

Secret Link