Flugradíómaður á Egilsstaðaflugvelli
Við hjá Isavia Innanlandsflugvöllum óskum eftir að ráða flugradíómann á Egilsstaðaflugvöll. Viðkomandi þarf að ljúka grunnnámi flugradíómanna. Þjálfunin tekur u.þ.b. þrjá mánuði. Helstu verkefni eru að veita flugmönnum upplýsingar úr flugturni, fylgjast með fjarskiptarásum (radíó og síma), gerð og dreifing veðurathugana, vöktun á EGNOS búnaði og sinna flugvernd.
Starfið er unnið í vaktavinnu og er bæði fjölbreytt og krefjandi í spennandi og skemmtilegu starfsumhverfi.
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Gerð er krafa um gott heilsufar
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Harðarson umdæmisstjóri, [email protected]
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 22. desember 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Isavia: Yfirlit yfir störf í boði | Isavia