Flokkstjóri í vélsmiðju á Reyðarfirði

VHE leitar að sjálfstæðum og öflugum einstaklingi í starf flokkstjóra í vélsmiðju okkar á Reyðarfirði. Við leitum að einstaklingi sem er lausnarmiðaður og þjónustulundaður, með iðnréttindi eða áralanga reynslu á sínu sviði.

Til greina koma vanir suðumenn, stálsmiðir, vélvirkjar og vélstjórar eða reynsluboltar úr öðrum sambærilegum sviðum sem hafa stjórnunarreynslu.

Um ræðir fullt starf á skemmtilegum vinnustað við fjölskylduvænar aðstæður þar sem stígandi hefur verið mikill með bjartan vöxt og verkefnastöðu framundan.

Góð laun í boði fyrir góða aðila

  • Heilsubótarstyrkir
  • Möguleiki á húsnæði

Íslenska- eða góð enskukunnátta er skilyrði.

Við hvetujum konur og karla til að sækja um öll störf hjá fyrirtækinu.

Umsóknir eru meðhöndlaðar með trúnaði.

Nánari upplýsingar um störfin og umsóknir má senda á [email protected]