Fljótsdalshérað auglýsir eftir leikskólakennurum
Fljótsdalshérað auglýsir eftir leikskólakennurum við leikskólana Hádegishöfða og Tjarnarskóg og samrekna leik- og grunnskólann í Brúarási.
Menntunar- og hæfniskröfur eru:
- Leikskólakennaramenntun
- Færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi
- Jákvæðni og áhugasemi
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Snyrtimennska og stundvísi.
Við hvetjum bæði kynin til að sækja um.
Allar frekar upplýsingar um leikskólann Hádegishöfða og störf þar veitir Guðmunda Vala skólastjóri [email protected] 4700 670.
Upplýsingar um Tjarnarskóg veitir Sigríður Herdís, skólastjóri í síma 4700 660 eða á netfanginu [email protected] og um samrekna leik- og grunnskólann í Brúarási veitir Sigríður Stella allar frekari upplýsingar í síma 4700 626 eða á netfanginu [email protected].
Umsóknir sendist á netfang viðkomandi skólastjóra. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2020