Fjölbreytt sumarstörf í boði
Eimskip á Austurlandi leitar að jákvæðu og drífandi fólki til starfa á starfsstöðvar félagsins í sumar. Fjölbreytt störf eru í boði og verður ráðið í störf bæði í vaktavinnu og dagvinnu.
Ráðið verður í stöður á eftirfarandi svæðum:
- Hafnarsvæði Mjóeyrarhöfn
- Skrifstofa Mjóeyrarhöfn
- Verkstæði Mjóeyrarhöfn
- Vöruhús Egilsstaðir
- Vöruhús Höfn
- Vöruhús Neskaupstaður
- Vöruhús Reyðarfjörður
- Meiraprófsbílstjórar í akstur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Ökuréttindi eru skilyrðui vegna starfa í vöruhúsum
- Lyftararéttindi eru kostur vegna starfa í vöruhúsum
- Meirapróf er skilyrði fyrir bílstjóra í akstur
- Stjálfstæð vinnubrögð
- Sveigjanleiki, þjónustulund og jákvæðni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Störf á hafnarsvæði eru unnin í vaktavinnu, annars vegar á 12 tíma dag- og næturvöktum í hleðsluskála þar sem unnið er í 5 daga og frí í 5 daga, og hins vegar á bryggju þar sem unnið er á 8 og 12 tíma vöktum.
Störf á skrifstofu og í vöruhúsum eru unnin í dagvinnu, með tilfallandi yfirvinnu.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíaðn starfsfólks þar sem markvisst er unnið að jafnri stöðu óháð kyni og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.
Nánari upplýsingar veitir Mannauðssvið í gegnum netfangið [email protected] en eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum vefinn, www.eimskip.is.
Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2023.
Öllum umsóknum verður varað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.