Fimleikafélag Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða fimleikaþjálfara
Fimleikafélag Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða fimleikaþjálfara frá og með janúar 2021.
Í félaginu eru um 160 iðkendur á aldrinum 2 – 16 ára. Félagið hefur starfsemi í janúar og leitum við af öflugum þjálfara til að taka þátt í krefjandi og skemmtilegum verkefnum framundan!
Leitað er af þjálfara í tímavinnu til að þjálfa flesta aldurshópa. Ekki er gerð krafa um þjálfararéttindi en æskilegt er að hafa reynslu af íþróttum.
Umsóknir og fyrirspurnir skal senda á [email protected]