Fellaskóli – afleysing fyrir umsjónarkennara frá áramótum
Laus er til umsóknar afleysingarstaða umsjónarkennara í 8. bekk í Fellaskóla.
Stöðuhlutfall er allt að 58% og ráðningartími eitt ár frá áramótum 2018/19.
Kennslugreinar eru stærðfræði, íslenska, lífsleikni og upplýsingamennt.
Menntunar- og hæfniskröfur eru leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, góð hæfni til samstarfs
og samskipta, frumkvæði, jákvæðni og ábyrgð í starfi.
Frekari upplýsingar fást í síma 4700-640 hjá Þórhöllu Sigmundsdóttur skólastjóra
[email protected] og Hjördísi Mörtu Óskarsdóttur aðstoðarskólastjóra [email protected].
Umsóknarfrestur til 28. nóvember nk. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til skólastjóra
á netfangið [email protected].