Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd

Laus er til umsóknar 100% staða ráðgjafa við barna- og fjölskylduvernd Múlaþings. Starfið er laust nú þegar.

Starfskraftur sinnir meðal annars barnaverndarmálum, félagslegri ráðgjöf, samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, samvinnu eftir skilnað sem og öðrum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.

Næsti yfirmaður er sviðstjóri velferðar.

Á fjölskyldusviði Múlaþings starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga og lögð er áhersla á teymisvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnsla barna- og fjölskylduverndarmála.
  • Ráðgjöf við foreldra og börn.
  • Ráðgjöf við aðra sem að málum barna koma.
  • Málstjóri barnaverndarmála.
  • Málstjóri í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Félagsleg ráðgjöf.
  • Samstarf við aðrar stofnanir.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða menntun á uppeldis-, heilbrigðis- eða félagsvísindasviði.
  • Þekking og reynsla af félagsþjónustu og barnavernd er kostur.
  • Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum, samstarfi og teymisvinnu.
  • Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á OneSystems er kostur.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Hreint sakavottorð.
  • Bílpróf.
Fríðindi í starfi

Heilsueflingarstyrkur

Secret Link