Félagsráðgjafar hjá Múlaþingi
Um tvö stöðugildi er að ræða í barna- og fjölskylduvernd. Annars vegar 100% stöðu félagsráðgjafa og hins vegar 100% afleysingarstöðu félagsráðgjafa til 14 mánaða með möguleika á framhaldsráðningu.
Hjá Múlaþingi er mikið að gera í snemmtækum stuðningi og vandaðri þjónustu við barnafjölskyldur og lögð er áhersla á að búa starfsmönnum góðar og fjölskylduvænar starfsaðstæður. Til þess að álag sé ekki of mikið á hvern starfsmann vill sveitarfélagið fjölga í sínum hópi.
Félagsráðgjafi starfar í teymi Austurlandslíkansins er kemur að málefnum barna og fjölskyldna í samstarfi við skóla, leikskóla og heilsugæslu. Teymið starfar að hluta til í leik- og grunnskólum þeirra sveitarfélaga sem standa að Félagsþjónustu Múlaþings. Auk þess að sitja í teyminu, starfar félagsráðgjafi innan fjölskyldusviðs og sinnir m.a. barnaverndarmálum ásamt öðrum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.
Félagráðgjafi starfar meðal annars eftir barnaverndarlögum nr. 80/2002, og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og öðrum lögum er lúta að sviðinu.
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf
- Þekking og reynsla af félagsþjónustu og barnavernd
- Getu og vilja til samvinnu og hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum
- Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu
- Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á Navision og OneSystems er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Kostur að hafa PMTO meðferðarmenntun
- Bílpróf