Félagsráðgjafanemi

Sumarstarf í félagsþjónustu fyrir félagsráðgjafanema

Félagsþjónusta Múlaþings óskar eftir félagsráðgjafanema eða nema í sambærilegu námi í sumarstarf. Viðkomandi þarf að vera áhugasamur um almenna félagsþjónustu og barnavernd. Gott tækifæri fyrir áhugasaman nema til þess að kynnast starfsemi félagsþjónustu með handleiðslu reyndra starfsmanna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Öll verkefni félagsþjónustu, þ.á.m. félagsleg ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, barnavernd og fleiri verkefni félagsþjónustu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nemi í félagsráðgjöf eða á sambærilegu sviði
  • Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti
  • Góð alhliða tölvukunnátta er kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Bílpróf

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Júlía Sæmundsdóttir félagsmálastjóri í síma 470 0705 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Þeir sem ráðnir eru til starffa hjá félagsþjónustu, skólum og frístund þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Félagsráðgjafanemi | Fjölskyldusvið | Sumarstarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)

Secret Link