Félagslegur stuðningur í Múlaþingi

Um er að ræða starf hjá fjölskyldusviði Múlaþings sem felst í því að veita félagslegan stuðning til einstaklings/einstaklinga og er starfið laust nú þegar.

Starfið felst meðal annars í að virkja einstaklinga til félagslegrar virkni og aðstoða við daglegar athafnir. Starfshlutfall er umsemjanlegt. Vinnutími getur verið sveigjanlegur og starfið gæti því líka hentað sem aukavinna seinnipart dags eða um helgar.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri í félagslegri ráðgjöf.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Íslenskukunnátta æskileg.
  • Ökuréttindi eru nauðsynleg.
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi væri kostur.
  • Hreint sakavottorð.
Secret Link