Félagsleg heimaþjónusta á Seyðisfirði
Um er að ræða um það bil 50% framtíðarstarf frá 1. Maí 2022.
Starfið felst meðal annars í aðstoð við heimilishald og persónulega umhirðu ásamt því að veita félagsskap.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Íslenskukunnátta
- Ökuréttindi eru nauðsynleg
- Þekking og reynsla sem nýtist í starfi væri kostur
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Félagsþjónustu Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalheiður Árnadóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]
Umsækjendur er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Sæktu um starfið hér