Félagsleg heimaþjónusta á Seyðisfirði
Um er að ræða starf í tímavinnu frá 25. September nk.
Starfið felst aðallega í félagslegum stuðningi við eldri borgara og fólk með fötlun, eins og t.d. spjall, göngutúrar, aðstoð við heimilisstörf o.fl. Í flestum tilfellum er ekki um þrif að ræða, þar sem verktaki sér um þann hluta stuðnings inn á heimilin.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Íslenskukunnátta
- Ökuréttindi eru nauðsynleg
- Þekking og ryensla sem nýtist í starfi væri kostur
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur yfirr hæfni viðkomandi í starfið. Þeir sem ráðnir er util starfa hjá Félagsþjónustu Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalheiður Árnadóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2022 og hægt er að sækja um í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Félagsleg heimaþjónusta á Seyðisfirði | Fjölskyldusvið | Hlutastarf Seyðisfjörður | Alfreð (alfred.is)