Félagsleg heimaþjónusta á Djúpavogi

Um er að ræða um það bið 20% framtíðarstarf við heimaþjónustu fyrir eldri borgara á Djúpavogi og nærsveitum. Sveigjanlegur vinnutími. Möguleiki á ða hafa starfið sem aukavinnu og hafa vinnutíma um helgar eða seinnipart dags.

Starfið felst meðal annars í aðstoð við heimilishald og persónulega umhirðu ásamt því að veita félagsskap.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélags við viðkomandi stéttarfélög.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Íslenskukunnátta
  • Ökuréttindi eru nauðsynleg
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi væri kostur

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Félagsþjónustu Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýisnga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til aðsækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalheiður Árnadóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum vefsíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „störf í boði“

Secret Link