Félagsleg heimaþjónusta á Djúpavogi

Um er að ræða um það bil 25% framtíðarstarf. Sveigjanlegur vinnutími. Möguleiki á að hafa starfið sem aukavinnu og hafa vinnutíma um helgar eða seinnipart dags.

Starfið felst meðal annars í aðstoð við heimilishald og persónulega umhirðu ásamt því að veita félagsskap.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Íslenskukunnátta
  • Ökuréttindi eru nauðsynleg
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi væri kostur

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Félagsþjónustu Múlaþings þurfa að veita heimild til að letað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalheiður Árnadóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Sæktu um starfið hér

Secret Link