Egilsstaðskóli – laus smíða kennarastaða

Smíðakennara vantar til starfa við Egilsstaðaskóla frá og með næsta skólaári. Um að ræða 100% starf. Gerð er krafa um leyfisbréf, góða samskiptafærni og  skipulagshæfileika.  Umsóknarfrestur er til 4.maí.

Nánari upplýsingar veitir Ruth Magnúsdóttir skólastjóri í síma 4700 607 eða netfang [email protected]. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda skólastjóra [email protected].

Í Egilsstaðaskóla eru 370 nemendur og tæplega 80 starfsmenn. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn. Gildi skólans eru gleði, virðingog metnaður. Áhersluþættir í faglegu starfi eru teymiskennsla, virkir nemendur og list og verkgreinar. Skólinn er til húsa í nýlegu og nýlega upp gerðu húsnæði og er aðstaða öll til fyrirmyndar.

Secret Link