Egilsstaðir – sumar 2023

Vínbúðin Egilsstöðum óskar eftir sumarstarfsfólki

Vínbúðirnar leita að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingum sem eru tilbúnir að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
  • Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
  • Umhirða búðar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

  • Um er að ræða 100% starf
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Sakavottorðs er krafist

Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið á www.vinbudin.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar.

Nánari upplýsingar veita Erna Þórey Guttormsdóttir – [email protected] – 560 7877 og Thelma Kristín Snorradottir – [email protected] – 560 7700.

ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

 

Secret Link