Egilsstaðir: Söluráðgjafi í verslun

Vilt þú vera með okkur í liði?

Við leitum að jákvæðum og glaðlyndum einstaklingum til þess að slást í hópinn í verslun okkar á Egilsstöðum. Ef þú hefur gaman að því að selja og ert tilbúinn til þess að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina, þá gætum við verið með starfið fyrir þig.

Vinnutími er frá 9:00 – 18:00 virka daga og frá 10:00 – 14:00 annan hvern laugardag.

Við leitum einnig að liðsauka í hlutastörf þar sem vinnutími er umsemjanlegur, tilvalið fyrir fólk á „besta aldri“ ásamt sumarstarfsfólki.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
  • Móttaka vöru, tiltekt og afgreiðsla pantana
  • Önnur tilfallandi verslunarstörf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð
  • Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
  • Sterk öryggisvitund
  • Almenn tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Afsláttarkjör í verslunum okkar
  • Styrkir til heilsueflingar
  • Aðgangur að orlofshúsum

Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhann Páll Svavarsson, rekstarstjóri á [email protected]

Hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni.

Gildin okkar eru: Áreiðanleiki – Þjónustulund – Þekking

Nánar um vinnustaðinn: www.husa.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarsíðu Húsasmiðjunnar: https://www.husa.is/laus-storf/

Secret Link