Egilsstaðaskóli – Stuðningsfulltrúi

Við Egilsstaðaskóla eru lausar til umsóknar stöður stuðningsfulltrúa 80-100 % starf. Starf stuðningsfulltrúa er fjölbreytt og felur í sér stuðning við nemendur, gæslu í hádegi og frímínútum ásamt því að starfa í Frístund.

  • Hefur áhuga á að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við þau.
  • Hefur til að bera góða samskiptahæfni og er tilbúinn að vinna með öðrum.
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við viðkomandi félag. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið [email protected]
Frekari upplýsingar veitir skólastjóri, Ruth Magnúsdóttir s. 4700-605 og er umsóknarfrestur til og með 25. maí.

www.egilsstadaskoli.is