Egilsstaðaskóli – skólaliðastarf

Við Egilsstaðaskóla er laus til umsóknar staða skólaliða 75 % starf. Starf skólaliða er fjölbreytt og felur í sér ræstingu, gæslu og umsjón með nemendum í frímínútum og matsal.

Leitað er að aðila sem:

  • Hefur áhuga á að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við þau.
  • Hefur til að bera góða samskiptahæfni og er tilbúinn að vinna með öðrum.
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við viðkomandi félag. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið [email protected]
Frekari upplýsingar veitir skólastjóri, Ruth Magnúsdóttir s. 4700-605 og er umsóknarfrestur til og með 22. nóvember 2020

www.egilsstadaskoli.is