Djúpivogur – verslunarstjóri

Vínbúðin óskar eftir að ráða verslunarstjóra í Vínbúðina Djúpavogi.

Við leitum að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við frábæran starfsmannahóp ÁTVR.

Viðkomandi þarf að vera ábyrgðarfullur og hafa vilja og getu til að takast á við margvísleg verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
  • Dagleg stjórnun, birgðahald og umhirða búðar
  • Eftirfylgni þjónustu- og gæðastefnu fyrirtækisins
  • Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af verslunar- og/eða verkstjórn
  • Frumkvæði, metnaður og ábyrgð í starfi
  • Gott viðmót og rík þjónustulund
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Almenn tölvukunnátta, þekking á Navision er kostur

Frekari upplýsingar um starifð

  • Starfshlutfall er 45%
  • Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri
  • Sakavottorðs er krafist

Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar. Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið á www.vinbudin.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur veirð tekin.

Nánari upplýsingar veita Ingibjörg H. Stefánsdóttir – [email protected] 560 7876 og Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected] – 560 7700.

ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks. Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

 

Secret Link