Djúpavogsskóli og Leikskólinn Bjarkartún

Áherslur skólanna eru í takt við hugmyndafræði Cittáslow og grænfánans og mikil áhersla á velferð og vellíðan.
Skólarnir leggja áherslu á teymis- og útikennslu, grenndarnám, núvitund og nýskapandi vinnu.
Starfsandinn er góður og tækifærin mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga.
Við leitum að kennurum og starfsfólki með farsæla starfsreynslu, sem eru tilbúnir að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólanna.

Eftirtalin störf eru í boði fyrir næsta skólaár:
• Umsjónarkennarar á yngsta-, mið- og unglingastig.
• Kennara í teymi á yngsta-, mið- og unglingastig.
• Samfélagsfræðikennara á mið- og unglingastig.
• Náttúrufræðikennara á mið- og unglingastig.
• Stærðfræðikennara á mið- og unglingasti.
• Íþrótta- og sundkennara fyrir öll stig.
• Heimilisfræðikennara fyrir öll stig.
• Listgreinakennara fyrir öll stig.
• Sérkennara í fullt starf sem mun starfa með stoðteymi.
• Kennara sem kennir pólsku sem móðurmál.
• Þroskaþjálfa sem mun starfa með stoðteymi.
• Leikskólakennara í fullt starf á leikskóla.
• Stuðningsfulltrúa í fullt starf á leikskóla.

Menntunar- og hæfnikröfur:
• Umsækjendur í kennarastörf þurfa að hafa kennsluréttindi.
• Umsækjendur í starf þroskaþjálfa þurfa að hafa lokið þroskaþjálfanámi.
• Menntun sem nýtist í önnur störf er kostur.
• Allir umsækjendur þurfa að búa yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum, hafa gott vald á íslenskri tungu, vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og geta nýtt sér upplýsingatækni í kennslu.
• Flest störfin eru hlutastörf en til greina kemur að blanda störfum allt eftir hæfni og reynslu umsækjenda.

Laun greiðast skv. kjarasamningi KÍ, ÞÍ , Afls og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veita Signý Óskarsdóttir skólastjóri Djúpavogsskóla, [email protected] og Guðrún S. Sigurðardóttir skólastjóri Leikskólans Bjarkartúns, [email protected]
Umsóknarfrestur er t.o.m. 25. apríl 2020

Secret Link