Djúpavogsskóli auglýsir eftir almennu starfsfólki
Um tvö stöðugildi er að ræða og er umsemjanlegt um starfshlutfall og verkefni.
Meðal verkefna er að sinna almennum stuðningi við nemendur, gæslu, afleysingu í frístund auk frágangs og þrifa í lok dags.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin eru mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á samþættingu, úti- og grenndarnám, núvitund, sjálfbærni og teymisvinnu. Við leitum að kennurum sem hafa farsæla kennslureynslu og eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.
Næsti yfirmaður er skólastjóri Djúpavogsskóla.
- Fylgjast með og aðstoða nemendur í leik og starfi
- Almenn þrif á skólahúsnæði
- Almenn gæsla í frímínútum og hádegi
- Almenn gæsla í frístund eftir þörfum
- Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans
- Góð samskipta- og starfshæfi og áhugi á að vinna í teymi.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun.
- Gott vald á íslenskri tungu.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Hreint sakavottorð.