Deildarstjóri
Laus störf í nýrri leikskóladeild Hádegishöfða við Vonarland
Fyrirhuguð er opnun nýrrar leikskóladeildar á Vonarlandi Egilsstöðum sem verður rekin undir hatti leikskólans Hádegishöfða.
Hádegishöfði er tveggja deilda leikskóli í Fellabæ sem starfar í anda Reggio Emilia, áhersla er á umhverfismennt og er Hádegishöfði skóli á grænni grein. Megináherslu í daglegu starfi eru að efla sjálfstæði, gleði og sköpun barna sem og virðingu þeirra fyrir sjálfum sér og öðrum.
Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er æskileg
Reynsla af vinnu á leikskóla er æskileg
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugi á að vinna með börnum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta