Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði

Vegagerðin auglýsir fjölbreytt og krefjandi starf deildarstjora umsjónardeildar á Austursvæði laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf á svæðismiðstöð á Reyðarfirði með möguleika á að sinna starfinu að hluta til í þjónustumiðstöð Vegagerðarinnar í Fellabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með nýframkvæmdum og viðhaldi vega
  • Umsjón með framkvæmdum umferðaröryggisaðgerða og viðhaldi varnargarða
  • Gerð viðhaldsáætlana, umsjon með efnisvinnslu ásamt efniskaupum á svæðinu
  • Mælingar tengdar framkvæmdum, s.s. útsetningar, framkvæmda- og úttektarmælingar
  • Kostnaðareftirlit
  • Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þau verkefni sem deildinni eru falin

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Verkfærðingur eða tæknifræðingur eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af ámóta störfum er kostur
  • Reynsla af verkefnastjornun er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
  • Góð íslesku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Góð tölvukunnátta

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%.

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Sveinsson, svæðisstjóri – [email protected] – 522 1000.

Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2023 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Vegagerðarinnar: Laus störf hjá Vegagerðinni | Laus störf | Vegagerðin (vegagerdin.is)

Secret Link