Deildarstjóri þjónustudeildar á Austursvæði
Vegagerðin auglýsir fjölbreytt og krefjandi starfi deildarstjóra þjónustudeildar á Austursvæði laust til umsóknar. Deildarstjóri ber ábyrgð á stjórnun og rekstri þjónustudeildar og hefur yfirumsjón með öllum þjónustuverkefnum á Austursvæði. Á þjónustudeild starfa um 15 starfsmenn á þremur þjónustustöðvum: í Fellabæ, á Reyðafirði og á Höfn. Svæðismiðstöð Austursvæðis er á Reyðarfirði.
Verkefni:
- Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þjónustuverkefni
- Yfirumsjón með rekstri og starfsemi þjónustustöðva og vélaverkstæðis
- Yfirumsjón með rekstri jarðganga
- Umsjón með viðhaldi vegsvæða
- Kostnaðareftirlit og birgðahald
Hæfniskröfur:
- Verk- eða tæknifræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af ámóta störfum er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
- Öryggisvitund
- Góð íslensku í rituðu og töluðu máli
- Góð tölvukunnátta
Skipulagseining:
Vg 60 Þjónustudeild Austursvæðis
Heimilisfang:
Búðareyri 11 og 13, 730 Reyðarfjörður
Tengiliðir:
- Sveinn Sveinsson
[email protected]
522 1000
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdarstofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Launaskilmáli:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.