Deildarstjóri tæknideildar á Austursvæði
Vegagerðin auglýsir eftir verkfræðingi eða tæknifræðingi til að sinna starfi deildarstjóra tæknideildar á Austursvæði. Um er að ræða fullt starf og starfstöðin er á Reyðarfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Við erum að leita eftir verkfræðingi eða tæknifræðingi sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni á sínu fagsviði, áætlanagerð og tæknilegan undirbúning venga nýframkvæmda og viðhaldsverka, ásamt umsjón með nýframkvæmdum.
Hæfnikröfur
Verkfræðingur eða tæknifræðingur
Reynsla af ámóta störfum er kostur
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
Frumkvæði og faglegur metnaður
Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
Góð íslenskukunnátta
Kunnátta í ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt umbeðnar upplýsingar um menntunar- og hæfnikröfur, þar með talið menntunar- og starfsferilsskrá. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2020
Nánari upplýsingar veitir
Sveinn Sveinsson – [email protected] – 5221000
Vegagerðin
Tæknideild Austursvæði
Búðareyri 11 og 13
730 Reyðarfjörður