Deildarstjóri miðstigs
Auglýst er eftir deildarstjóra miðstigs í 100% starf þar af 50% stjórnunarhlutfall og kennsla á móti. Um er að ræða framtíðarstarf frá og með næsta skólaári eða 1. ágúst 2022.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfar í stjórnunarteymi skólans
- Hefur umsjón með skólastarfi á viðkomandi skólastigi og daglegum verkefnum því tengdu
- Faglegur leiðtogi kennara á miðstigi
- Fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er leiðandi í faglegri umræðu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbref til kennslu í grunnskóla skilyrði
- Kennslureynsla úr grunnskóla mikilvæg
- Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi
- Góð samskiptafærni
- Góðir skipulagshæfileikar
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélagi Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Ruth Magnúsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 470 0605.
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Þeir sem ráðnir eru til starfa á Fjölskyldusvið Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til 9. júní 2022 og sótt er um starfið í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „störf í boði“ eða í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Deildarstjóri miðstigs | Egilsstaðaskóli | Fullt starf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)